Sveitarfélagið Bláskógabyggð auglýsir starf sveitarstjóra laust til umsóknar
Fréttir
15.06.2018
Bláskógabyggð er framsækið sveitarfélag í örum vexti þar sem nú búa rúmlega 1100 íbúar. Sveitarfélagið varð til árið 2002 við sameiningu þriggja hreppa, Biskupstungnahrepps, Laugardalshrepps og Þingvallahrepps. Þrír þéttbýliskjarnar eru í sveitarfélaginu, Laugarás, Laugarvatn og Reykholt.
Starfssvið:
- Daglegur rekstur sveitarfélagsins og ábyrgð á framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar
- Yfirumsjón með skipulagi og virkni stjórnsýslu sveitarfélagsins og starfsmannamálum
- Náið samstarf við sveitarstjórn, undirbúningur og upplýsingagjöf á fundum sveitarstjórnar
- Annast upplýsingamiðlun og samskipti við samstarfsaðila, stofnanir, samtök, fyrirtæki og íbúa
- Að gæta hagsmuna Bláskógabyggðar út á við, vera talsmaður sveitarstjórnar og vinna að framfaramálum
- Stefnumarkandi vinna og mótun framtíðarsýnar í ólíkum málaflokkum
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Reynsla af stjórnun, rekstri og fjármálum
- Þekking á sveitastjórnarmálum og opinberri stjórnsýslu
- Leiðtogahæfni, frumkvæði og hugmyndaauðgi
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
- Áhugi á uppbyggingu samfélagsins, kynningarmálum, ímynd og stefnumótun
- Reynsla af mannauðsmálum
- Reynsla og/eða þekking af markaðsmálum
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi