Sveitahátið og dansleikur 25. ágúst 2012
Fréttir
15.08.2012
Sveitahátíðin ,,Tvær úr Tungunum ,,
laugardaginn 25. ágúst
Dagskrá
10:00 Golfkynning
Golfkynning á íþróttavellinum í Reykholti. Kristinn J. Gíslason kynnir undirstöðuatriðin í golfíþróttinni. Gott væri ef þátttakendur hefðu meðferðis golfkylfu.
12:30 Knattþrautir KSÍ
Á íþróttavellinum í Reykholti verða Atli Eðvaldsson fyrrverandi landsliðsþjálfari og Gunnlaugur Gunnarsson með knattþrautir KSÍ fyrir 10 ára og eldri.
10:00 Rúgbrauðsrölt frá Kletti að hvernum
10:30 Gönguferð með leiðsögn frá Aratungu
Skúli Sæland gengur með gesti um Reykholt og nágrenni. Gangan tekur um 1,5 klst. kr 500.
Reykholtslaug opin laugardag 10:00-18:00. Frítt í sund.
14:oo Aratunguleikarnir í gröfuleikni. Snillingar við stýrið, hver hreppir bikarinn 2012.
Þátttökuskráning að morgni.
Járnkarlinn. Sterkustu bændur Bláskógabyggðar takast á í þríþrautinni "járnkarlinum".Umhverfisviðurkenning. Umhverfisnefnd Bláskógabyggðar verðlaunar iðnaðarlóð sem skarar fram úr í snyrtimennsku.
15:30 Bændaglíma Suðurlands 2012. Bændaglíma til minningar um Sigurð Greipsson.
Einnig lifandi tónlist á Kaffi-Kletti fimmtudags og föstudagskvöld.
Stórdansleikur í Aratungu laugardagskvöldið 25. ágúst
Fjölbreytt skemmtun.
Þórhallur Þórhallsson (sonur Ladda). Fyndnasti maður landsins 2007.
Dúettinn ?Þú og ég? Helga Möller og Jóhann Helgason
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar leikur fyrir dansi
Kynnir Þuríður Sigurðardóttir söngkona
Húsið opnar kl. 21:30 og skemmtunin hefst kl. 22:30
Verð í forsölu kr. 3000 ath. takmarkaður miðafjöldi verður seldur í forsölu
Verð við innganginn kr. 3500
18 ára aldurstakmark
Forsala miða verður í Bjarnabúð í Reykholti og hefst 18. ágúst.
Smellið hér fyrir neðan til að sjá auglýsingar nánar
Sveitahátíð
Dansleikur