Svæðisskipulag Suðurhálendis

Fréttir 19.01.2023
Svæðisskipulagsnefnd um svæðisskipulag Suðurhálendis hefur samþykkt greinargerð og umhverfisskýrslu Svæðisskipulags Suðurhálendis til kynningar skv. 2. mgr. 23. gr. skipulagslaga og 13. og 14. gr. laga um umhverfismat áætlana og framkvæmda. Tillögunni fylgir greinargerð um landslagsgreiningu fyrir Suðurhálendi, sem er fylgirit svæðisskipulagsins. Skipulagssvæðið nær yfir hálendissvæði níu sveitarfélaga á Suðurlandi en þau eru Skaftárhreppur, Mýrdalshreppur, Rangárþing eystra, Rangárþing ytra, Ásahreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Hrunamannahreppur, Bláskógabyggð og Grímsnes- og Grafningshreppur. Auk þeirra taka sveitarfélögin Flóahreppur og Árborg þátt í verkefninu. Viðfangsefni skipulagsvinnunnar er mótun framtíðarsýnar og stefnumörkun fyrir Suðurhálendið um sterka innviði, umhyggju fyrir auðlindum, ábyrga nýtingu auðlinda, aðgerðir fyrir loftslagið og góða samvinnu. Greinargerð til kynningar ásamt umhverfisskýrslu má finna á vef SASS, https://www.sass.is/sudurhalendi/ undir flipanum ?Vinnslutillaga?. Fylgirit um landslagsgreiningu er undir samnefndum flipa. Svæðisskipulagstillaga er nú kynnt fyrir umsagnaraðilum og er óskað eftir því að umsögnum sé skilað á netfangið sudurhalendi@sass.is fyrir 12. febrúar 2023. Svæðisskipulagsnefnd Suðurhálendis