Sumartónleikar í Skálholti

Fréttir 27.06.2018
Tónlistarhátíð í fertugasta og þriðja sinn. Nú er tími Sumartónleika í Skálholti að renna upp og fjölbreytt efnisskrá er í boði. Tónleikahelgarnar hjá okkur verða fjórar í sumar. Við byrjum með tónleikum þriðjudaginn 3. júlí og svo rekja viðburðirnir sig áfram um helgar, fram að Skálholtshátíð um miðjan júlí, en þá er gert hlé á Sumartónleikunum, sem hefjast aftur þann 27. júlí og lýkur um verslunarmannahelgina. Tvær ungar konur eru staðartónskáld í ár, þær Bergrún Snæbjörnsdóttir og Bára Gísladóttir. Dagskráin 2018 er trú fyrri markmiðum Sumartónleika í Skálholti og lögð áhersla á nýsköpun og frumflutning annars vegar og svo hins vegar á flutning barokktónlistar á upprunaleg hljóðfæri. Fjöldi innlendra og erlendra listamanna kemur fram í sumar. Alls er gert ráð fyrir um tuttugu viðburðum á Sumartónleikunum. Menningarupplifun og náttúra Sumartónleikarnir njóta vaxandi vinsælda sem afþreying fyrir ferðamenn og mörgum þykir viðkoma í Skálholtskirkju til að hlusta á lifandi tónlist, auka og dýpka upplifunina þegar ferðast er um Suðurland og ekki er verra að þessi upplifun standi fyrir sínu, óháð veðri. Auk þess njóta tónleikagestir þess að ekki er tekinn aðgangseyrir á Sumartónleikana þótt tekið sé við frjálsum framlögum. Í næstu viku Caput og Marco Fusi Hér fylgir strengur á dagskrána okkar og vek ég athygli nú í upphafi á heimsþekktum gesti Marco Fusi í næstu viku. Marco Fusi hefur starfað með mörgum af frægustu tónlistarmönnum álfunnar á sviði nútímatónlistar. Hann hefur einnig endurvakið áhuga á viola d?amore hljóðfærinu og frumflutt fyrir það ný verk. Fjögur ný verk fyrir viola d?amore og rafhljóð eru meðal þess sem verður frumflutt í næstu viku í Skálholti. Marco Fusi hefur á ferli sínum m.a. frumflutt verk eftir  Billone, Sciarrino, Eo?tvo?s, Cendo og Ferneyhough og komið fram með stjórnendunum Pierre Boulez og Lorin Maazel. Hann er tíður gestur leiðandi hópa í samtímatónlist s.s. Klangforum Wien, MusikFabrik, Meitar Ensemble, Mivos Quartet, Ensemble Linea, Interface (Frankfurt), Phoenix (Basel) and Handwerk (Ko?ln). http://www.sumartonleikar.is/dagskraacute.html Á annarri helgi Sumartónleikanna verða fluttar tvær kantötur eftir Johann Sebastian Bach með sönghópnum Cantoque Ensemble og Bachsveitinni. Að auki verða þá tónleikar til minningar um Þorkel Sigurbjörnsson. Á þriðju helgi verður Barokkbandið Brák í stóru hlutverki, einnig Corpo di Strumenti. Á lokahelginni verður sjónum m.a. beint að konum í tónlist og er sú helgi í höndum Nordic Affect kammerhópsins. Einnig koma þar fram Sólveig Thoroddsen hörpuleikari og Sergio Coto Blanco.lútuleikari. Fyrstu tónleikarnir, sem bera yfirskriftina Endurreisn, fara fram í Oddsstofu í Skálholtsbúðum á þriðjudagskvöldið og hefjast klukkan 20. Hér fyrir neðan eru einnig upplýsingar um tónleikahaldið 7.-8. júlí NÝTT AF NÁLINNI Þriðjudagur 3. júlí 20:00 ENDURREISN Norræn verk fyrir  ?viola d'amore Tónleikar með Marco Fusi, sérstökum gesti Caput-hópsins  og Sumartónleikanna. Verk eftir Ylvu Lund-Bergner, Øyvind Mæland, Axel Rudebeck og Johan Svensson. Í Oddsstofu.  Laugardagur 7. Júlí 13:00 Viola d?amore á vorum dögum ?Marco Fusi flytur erindi. 14:00 BRÆÐINGUR Hljóðfæri og rafhljóð Marco Fusi leikur fiðlusóló eftir Pierluigi Billone og frumflytur verk eftir Báru Gísladóttur, Bergrúnu Snæbjörnsdóttur, Halldór Smárason og Þráin Hjálmarsson fyrir viola d'amore og rafhljóð.  16:00 SAMSPIL Marco Fusi og Caput Frumflutningur á Skeyti frá glerskurðarmanninum eftir Atla Ingólfsson. Einnig verður frumflutt  ný útgáfa á ?Vana e d' amore  fyrir viola d?amore og kammerhóp eftir ítalska tónskáldið Carlo Ciceri. Á tónleikunum hljómar einnig verkið Pharos eftir Esaias Järnegard frá Svíþjóð. Sunnudagur 8. júlí ? 14:00 AMORE TÓNAR OG FLEIRI FRAMANDI HLJÓР  Marco Fusi og Caput-hópurinn   Blönduð efnisskrá. Verkin sem frumflutt voru á laugardeginum verða endurtekin. Við munum svo senda fréttatilkynningar í upphafi hverrar viku fyrir sig. Nánari upplýsingar um okkur á heimasíðu Sumartónleikanna, sumartonleikar.is  og á ensku http://en.sumartonleikar.is/ Allar nánari upplýsingar veitum við fúslega. Margrét Bóasdóttir sími 8561531 netfang: margret.boasdottir@gmail.com er formaður stjórnar Sumartónleikanna. Kolbeinn Bjarnason ( sími: 897 8577 netfang: kolb@simnet.is)  meðstjórnandi og Tryggvi Baldvinsson einnig. Guðrún Birgisdóttir fer með verkefnastjórnina 2018.