Sumarstarf fyrir námsmann

Fréttir 04.05.2021
Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita bs. leitar eftir áhugasömum námsmanni, 18 ára (á árinu) og eldri, í sumarstarf hjá embættinu. Starfið snýst um verkefni við skönnun og skráningu á gögnum fyrir skipulags- og byggingarsvið. Starfið er hluti af atvinnuátaki sveitarfélaganna í samvinnu við Vinnumálastofnun, ætlað námsmönnum sem eru skráðir í nám að hausti 2021 eða voru skráðir í nám á vorönn 2021. Ráðningartíminn er að hámarki tveir og hálfur mánuður (10 vikur) og skal falla til innan tímabilsins 15. maí til 15. september 2021. Skrifstofa embættisins er að Dalbraut 12 á Laugarvatni. Helstu verkefni:
  • Skráning, skönnun og frágangur á skipulagsáætlunum og byggingarnefndarteikningum
  • Vinna við landupplýsinga- og loftmyndagrunna
  • Önnur tilfallandi störf í samráði við yfirmann
Menntunar- og hæfniskröfur:
  • Háskóla- eða framhaldsskólanemi
  • Fæddur árið 2003 eða fyrr
  • Sýnir sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Hefur góða almenna tölvukunnáttu
Starfsmaður mun fá góða tilsögn í starfið. Nánari upplýsingar gefur Jóhannes Hr. Símonarson, skrifstofustjóri í síma 480-5550 eða á netfanginu johannes@utu.is Umsókn ásamt kynningarbréfi og starfsferilsskrá skal jafnframt senda á þetta sama netfang. Nánari upplýsingar: Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita bs. (UTU) er sameiginleg skrifstofa skipulags- og byggingarfulltrúa sex sveitarfélaga, þ.e. Ásahrepps, Bláskógabyggðar, Grímsnes- og Grafningshrepps, Flóahrepps, Hrunamannahrepps og Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Hjá embættinu starfa tíu manns. Skrifstofa embættisins er á Laugarvatni. Mörg sumarhús eru á starfssvæði embættisins og einkennir það starfsemi UTU umfram önnur skipulags- og byggingarembætti á landinu.