Sumarstarf fyrir námsmann

Fréttir 26.05.2020
Við leitum að áhugasömum námsmanni 18 ára eða eldri í sumarstarf í Uppsveitum Árnessýslu, til að vinna að verkefnum tengdum heilsueflandi samfélagi og ferðaþjónustu. Viðkomandi þarf að hafa áhuga á útivist, vera félagslyndur, sjálfstæður og lipur í samskiptum. Hafa færni í stafrænni miðlun og notkun samfélagsmiðla, þekking á svæðinu er kostur. Í starfinu felst skemmtileg verkefnavinna, miðlun og kynning. Sérstaklega áhugavert fyrir námsmenn í lýðheilsu-, íþrótta-  frístunda-,  ferðamála-, markaðsfræðum, menningarmiðlun eða öðrum skyldum greinum. Starfið er hluti af atvinnuátaki sveitarfélaganna í samvinnu við Vinnumálastofnun, ætlað námsmönnum sem eru 18 ára og eldri sem eru á milli anna í námi. Ráðningartíminn er a.m.k. tveir mánuðir og fellur innan tímabilsins 01. júní til 31. ágúst 2020. Nánari upplýsingar um starfið gefa Gunnar Gunnarsson heilsueflandi@fludir.is og Ásborg Arnþórsdóttir asborg@ismennt.is Umsókn ásamt kynningarbréfi og starfsferilsskrá skal jafnframt senda á sömu netföng. Umsóknarfrestur er til og með 2.júní Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og FOSS