Sumarstarf fyrir námsmann
Fréttir
18.05.2020
Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita bs. leitar eftir áhugasömum námsmanni, 18 ára og eldri, í verkefni við skönnun og skráningu á gögnum fyrir skipulags- og byggingarsvið. Starfið er hluti af atvinnuátaki sveitarfélaganna í samvinnu við Vinnumálastofnun, ætlað námsmönnum sem eru 18 ára og eldri sem eru á milli anna í námi, þ.e. er að koma úr námi og er skráður í nám að hausti.
Ráðningartíminn er a.m.k. tveir mánuðir og fellur innan tímabilsins 01. júní til 31. ágúst 2020. Skrifstofa embættisins er að Dalbraut 12 á Laugarvatni
Helstu verkefni:
- Skráning, skönnun og frágangur á skipulagsáætlunum og byggingarnefndarteikningum
- Vinna við landupplýsingagrunna
- Almenn skrifstofuvinna innan skipulags- og byggingarsviða
- Önnur tilfallandi störf í samráði við yfirmann
- Nemi í verkfræði, tæknifræði og skyldum greinum
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Lipurð og færni í mannlegum samskiptum
- Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti