Stuðningsfulltrúi óskast

Fréttir 25.11.2021
Reykholtsskóli Bláskógabyggð óskar eftir stuðningsfulltrúa til starfa í 100% stöðu. Starfið felur í sér að aðstoða nemendur við nám og önnur fjölbreytt verkefni sem til falla í skólastarfi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í janúar 2022. Umsækjendur þurfa að sýna fram á hreint sakavottorð. Umsóknir sendist á Láru B. Jónsdóttur, skólastjóra, sem veitir einnig nánari upplýsingar. Netfangið er lbj@reykholtsskoli.is og símanúmerið 480 3020 . Umsóknarfrestur er til 26. nóvember 2021.