Stærsti hjólreiðaviðburður sumarsins á laugardag á Laugarvatni

Fréttir 09.07.2020
Keppendur hvattir til að nýta ferðagjöfina og njóta Laugarvatns  KIA Gullhringurinn ein umfangsmesta og vinsælasta hjólreiðakeppni landsins. verður haldin á Laugarvatni á laugardaginn. Keppnin er haldin ár hvert og hjólað um margar þekktustu náttúruperlur Íslands um leið og hjólað er um þekktustu söguslóðir þjóðarinnar, Skálholt, Bræðratungu svo ekki sé nú minnst á Þingvelli. Allir vinna, allir velkomnir  Mottó KIA Gullhringsins er ?Allir hjóla, allir vinna og allir velkomnir? og er hægt að velja sér vegalengd eftir getu hvers og eins úr þremur mismunandi keppnisstigum. Í ár er svo boðið upp á rafmagnshjóla flokk í fyrsta sinn og er það í fyrsta sinn í hjólreiðakeppni á Íslandi sem það er í boði. Þá er keppnin hluti af mótaröðinni Víkingar ásamt keppnunum Hengil Ultra, Landsnet MTP og Eldslóðinni. Umferð um uppsveitirnar í sögulegu lágmarki um helgina Allt þekktasta hjólreiðafólk landsins hefur hjólað KIA Gullhringinn og það sem skemmtilegra er að nýliðar í sportinu hafa notað KIA Gullhringinn sem fyrstu keppnina sína og þannig formlega innkomu sína í sportið. Það sem gerir keppnina í ár frábrugðna keppnum síðustu ára að umferð í uppsveitum Árnessýslu verður væntanlega í sögulegu lágmarki á laugardagskvöld en keppnin er ræst milli 17:00 og 18:00 frá Laugarvatni. Stórar rútur og ferðaþjónustu tengd umferð verður líklega engin og tímabundnar lokanir gera brautina öruggari en nokkru sinni fyrr. Gestir hvattir til að njóta Laugarvatns og Bláskógarbyggðar  Þá hafa skipuleggendur keppninnar hvatt keppendur að koma með fjöslkyldurnar sínar og nýta sér ferðagjöf stjórnvalda til að gista að njóta fjölbreyttrar afþreyingar sem er í boði í uppsveitunum og öllum þeim frábæru veitingastöðum sem þar er að finna. Fyrir utan landsþekkt náttúruundur eru veitingastaðir á borð við Lindina, Friðheima og Efstadal. Fontana boðin sem hafa sjaldan verið vinsælli, standbretti og fjallahjólabraut á Laugarvatni og svona mætti lengja telja. Hámarksfjöldi keppenda vegna Covid 19 Skráðir keppendur eru um 340 talsins en gert er ráð fyrir að sú tala fari vel yfir 400 þegar nær dregur helginni en ekki verða fleiri skráðir til keppni en 475. Keppninni er svo skipt upp í fimm ræsingar flokka og farið að leiðbeiningum almannavarna. Þannig er miðpunktur keppninnar í ár ekki niður við vatnið og Fontana böðin heldur uppi við Menntaskólann á Laugarvatni sem gerir það mun auðveldara að fara að fyrrnefndum reglum. Dagskráin byrjar á tónleikum leynigesta  Skrifstofa keppninar opnar klukkan 12:00 á hádegi á laugardag á Laugarvatni en keppnishald hefst svo klukkan 16:00 með tónleikum þar sem sjóðheitir leynigestir stíga á svið og koma keppendum í keppnisgírinn. Pottar og pönnur barðar við þjóðveginn Sú hefð hefur skapast að sumarbústaðareigendur og íbúar uppsveitanna hafa safnast saman við sín gatnamót við Laugarvatnsveg og Biskupstungnabraut þar sem keppnin fer um og barið þar potta og pönnur til hvatningar keppendunum. En skipulagðar hvatningarstöðvar verða við gatnamót Biskupstungnabrautar og Miklaholts upp undir Reykholti í Biskupstungum, Á malbikaða útsýnisplaninu við Brúará og svo á horni Biskupstungnabrautar (34) og Laugarvatnsvegar (37) Gott samstarf við Vegagerðina og verktaka  Einhverjar vegaframkvæmdir eru á þeim spotta sem telja um 3 km af brautinni en góð samskipti og samráð hafa verið höfð við Vegagerðina og verktaka þeirra og verður leiðin gerð keppnisfær fyrir helgina og fyllsta öryggis gætt. Öryggisstjóri keppninnar KIA Gullhringsins er engin annar en Ólafur Kr. Guðmundsson sérfræðingur í umferðaöryggi á Íslandi, fyrrum tæknistjóri EuroRAP á Íslandi og alþjólegur FIA dómari í formúlu. Nánari upplýsingar veita Ólafur Kr Guðmundsson öryggisstjóri 897 6154 Þórir Erlingsson mótstjóri 892 8003 Einar Bárðar áhugamaður 618 9000