Snjómokstur í þéttbýliskjörnum.

Fréttir 13.09.2022
Tilboð í snjómokstur og hálkuvarnir í þéttbýliskjörnum í Bláskógabyggð næstu þrjá vetur 2022 ? 2025 voru opnuð í Aratungu þann 12 september. Um er að ræða Reykholt, Laugarvatn og Laugarás Það bárust tilboð frá samtals sex aðilum. Lægsta tilboð í snjómokstur og hálkuvarnir á Laugarvatni áttu ÓA vinnuvélar ehf, það er félag í eigu Sigurðar Sigurðssonar. Í Reykholti átti Kjartan Jóhannsson lægsta boð. Eitt tilboð barst í þjónustuna í Laugarási það kom frá Félagsbúinu Hrosshaga. Bláskógabyggð áskilur sér rétt til að yfirfara framkomin tilboð og tilkynna niðurstöður þeirrar athugunar til allra tilboðsgjafa að athugun lokinni.