Skólaþjónusta Árnesþings óskar eftir sálfræðingi til starfa
Fréttir
19.01.2015
Staða sálfræðings fyrir leik- og grunnskóla á starfssvæði skólaþjónustu Árnesþings er laus til
umsóknar. Um er að ræða 50% stöðu. Í sveitarfélögunum er unnin fjölbreytt verkefni á sviði
skóla- og velferðarmála og svigrúm er til nýrra verkefna og vinnubragða.
Starfssvið sálfræðings
? Ráðgjöf við skólastjórnendur og starfsfólk leik- og grunnskóla um snemmtæka íhlutun.
? Forvarnarstarf með áherslu á sjálfbærni skólanna við lausn mála sem upp koma.
? Skimanir, greiningar og ráðgjöf fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri, foreldra og starfsfólk
skóla.
? Fræðsla og/eða handleiðsla vegna mála einstaklinga eða hópa.
Sálfræðingur vinnur í þverfaglegu samstarfi við kennsluráðgjafa, félagsráðgjafa, starfsmenn
skóla, starfsfólk heilbrigðisþjónustu, aðra sérfræðinga, foreldra o.fl. til að stuðla að skilvirkni
þjónustunnar.
Menntunar- og hæfniskröfur sálfræðing
? Sálfræðimenntun og réttindi til að starfa sem sálfræðingur
? Sjálfstæði í vinnubrögðum
? Skipulagshæfileikar
? Frumkvæði
? Hæfni í þverfaglegu samstarfi
? Lipurð og færni í samskiptum
Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2015.
Umsóknir sendist til Hveragerðisbæjar, Sunnumörk 2, 810 Hveragerði eða á netfangið maria@hveragerdi.is. Með umsóknum fylgi ferilskrá um störf umsækjanda og menntun. Jafnframt fylgi greinargerð með hugmyndum umsækjanda um starf sálfræðings hjá skólaþjónustu Árnesþings. Í samræmi við jafnréttisstefnu sveitarfélaganna eru bæði karlar og konur hvött til að sækja um störfin.
Nánari upplýsingar veita: María Kristjánsdóttir forstöðumaður Skóla- og velferðarþjónustu
Árnesþings netfang maria@hveragerdi.is og Hrafnhildur Karlsdóttir kennsluráðgjafi og
teymisstjóri, netfang hrafnhildur@arnesthing.is