Skólaþing í Bláskógabyggð 30. mars 2011

Fréttir 15.03.2011
Skólaþing í Bláskógabyggð Miðvikudaginn 30. mars verður haldið skólaþing fyrir leik- og grunnskóla í Bláskógabyggð. Áætlað er að skólaþingið verði tvískipt þannig að nemendur grunnskólans fái tækifæri til að koma sínum hugmyndum á framfæri milli kl. 13:00-15:00 og að síðan taki fullorðna fólkið við kl. 15:30 og ræði hlutverk og framtíðarsýn allra skólanna, bæði leikskóla og grunnskóla. Áætlað er að skólaþinginu ljúki kl. 18:00. Skólaþingið er tilvalinn vettvangur fyrir þá sem hafa áhuga á skólastarfi í sveitarfélaginu. Þar verður möguleiki á að koma með hugmyndir um hvernig hægt er að efla skólastarf í Bláskógabyggð. Í framhaldinu verður mótuð skólastefna fyrir leik- og grunnskóla í Bláskógabyggð. Allir, nemendur, kennarar, foreldrar leik- og grunnskólabarna og aðrir sem hafa áhuga á skólastarfi almennt eru hvattir til að mæta og hafa áhrif á þróun skólamála. Nánari dagskrá verður auglýst síðar. Vinsamlegast skráið þátttöku á skrifstofu Bláskógabyggðar í síma: 486-8808 eða á netfangið sigurros@blaskogabyggd.is