Skólastjóri Bláskógaskóli, Reykholti
Fréttir
29.05.2020
Bláskógabyggð auglýsir eftir umsóknum um starf skólastjóra til að stýra Bláskógaskóla í Reykholti, Biskupstungum. Skólinn er fyrir nemendur í 1. til 10. bekk. Í skólanum eru 83 nemendur og þar starfa 20 starfsmenn. Kjörorð skólans eru Virðing-Vellíðan-Samvinna.
Bláskógaskóli í Reykholti er annar tveggja grunnskóla Bláskógabyggðar. Gott samstarf er við leikskólann Álfaborg í Reykholti, Bláskógaskóla á Laugarvatni og Kerhólsskóla í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfni og hefur mikla reynslu og þekkingu á grunnskólastarfi. Skólastjóri starfar skv. lögum og reglugerðum um grunnskóla og öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá, námskrá skólans og skólastefnu Bláskógabyggðar.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
- Veita skólanum faglega forystu.
- Virk þátttaka í þróun og skipulagi skólastarfs í sveitarfélaginu.
- Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri skólans.
- Samstarf við skólanefnd, sveitarstjóra og sveitarstjórn og aðra aðila skólasamfélagsins.
- Leyfisbréf grunnskólakennara og kennslureynsla á grunnskólastigi er skilyrði.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og lipurð í samstarfi er skilyrði.
- Þekking og reynsla af rekstri og stjórnun er kostur.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
- Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
- Góð almenn tölvukunnátta.