Skólaakstur við Bláskógaskóla Laugarvatni

Fréttir 19.08.2016
Bláskógaskóli Laugarvatni auglýsir eftir tilboðum í skólaakstur í Bláskógabyggð. Um er að ræða akstursleið nefnda Austureyjarleið, Útey að Bláskógaskóla Laugarvatni. Útboðsgögn liggja frammi hjá skólastjóra í Bláskógaskóla Laugarvatni. Frestur til að skila tilboðum rennur út 1. september kl. 12.00. Nánari upplýsingar Elfa Birkisdóttir, skólastjóri í síma 480-3031/ 8683035.