Samúðarkveðja til íbúa Húnabyggðar

Fréttir 23.08.2022
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar sendir íbúum Húnabyggðar innilegar samúðarkveðjur í kjölfar þeirra vofveiflegu atburða sem áttu sér stað í sveitarfélaginu síðastliðinn sunnudag. Hugur okkar er hjá íbúum, nágrönnum okkar í norðri, og hugsum við til allra þeirra sem eiga um sárt að binda með hluttekningu og hlýhug.