Samið við björgunarsveitir

Fréttir 16.12.2019
Bláskógabyggð hefur endurnýjað samninga við björgunarsveitirnar tvær sem starfa innan sveitarfélagsins, Björgunarsveitina Ingunni og Björgunarsveit Biskupstungna. Með samningunum eru framlög sveitarfélagsins til starfsemi félaganna aukin. Framlögin felast í rekstrarstyrk fyrir björgunarsveitirnar og ungmennastarf, framlögum fyrir tiltekin verkefni sem sveitirnar sinna, svo sem flugeldasýningar, og styrk til reksturs fasteigna björgunarsveitanna á móti kostnaði þeirra af fasteignagjöldum og heitavatnsnotkun. Þá er kveðið á um að þátttakendur á námskeiðum og æfingabúðum fái frítt í sund þá daga sem viðburðir standa yfir, svo og félagsmenn sem koma úr lengri útköllum. Samningarnir gilda til ársloka 2021. Með framlögum sínum vill Bláskógabyggð leggja áherslu á mikilvægi björgunarsveitanna sem viðbragðsaðila og það félags- og forvarnastarf sem sveitirnar sinna. Á meðfylgjandi myndum má sjá Helga Kjartansson, oddvita, Ástu Stefánsdóttur, sveitarstjóra, og fulltrúa björgunarsveitanna, þá Kristin Bjarnason og Sigurjón Pétur Guðmundsson frá Björgunarsveit Biskupstungna og Grím Kristinsson frá Björgunarsveitinni Ingunni.