Safnarasýning Upplits í Brautarholti á Safnahelgi

Fréttir 22.10.2012
Upplit stendur fyrir safnarasýningu í Félagsheimilinu Brautarholti á Skeiðum  laugardaginn 3. nóvember og er sýningin framlag Upplits til Safnahelgar á Suðurlandi, sem að þessu sinni fer fram dagana 2.?4. nóvember. Þetta er í annað sinn sem Upplit efnir til safnarasýningar, en sú fyrsta var haldin í Félagsheimilinu á Flúðum á Safnahelgi í fyrra og hlaut hún sérlega góðar undirtektir. Upplit biðlar nú sem fyrr til safnara í uppsveitunum að draga fram úr hirslum sínum gersemarnar sem þeir hafa verið að safna og koma ekki endilega alltaf fyrir margra sjónir. Nú er tækifærið til að dusta rykið af þessum einkasöfnum og hefja þau til vegs og virðingar með því að sýna þau öðrum. Við erum að tala um þessi smáu jafnt sem stóru söfn sem leynast víða á heimilum; frímerki, spil, merki, uglur, kindur, húfur, penna, límmiða, glansmyndir, servíettur, eldspýtustokka, þjóðbúningadúkkur, póstkort, skó eða hvaðeina sem sumir hafa gaman af að safna og aðrir hafa gaman af að skoða. Gert er ráð fyrir að sýningin standi frá kl. 13 til 17 laugardaginn 3. nóvember og að safnararnir verði á staðnum á meðan á henni stendur til að sýna söfnin sín og svara spurningum gesta. Í félagsheimilinu verður stillt upp borðum til að raða söfnunum á, en safnarar verða sjálfir að sjá fyrir kössum, skápum eða öðrum hirslum til að geyma safngripina í ef borðin duga ekki. Þeir sem hafa áhuga á að vera með í sýningunni eru hvattir til hafa samband við sýningarstjórana Skúla Sæland (663 9010 / skulisael@gmail.com) eða Önnu Kristjönu Ásmundsdóttur (896 6430 / anna@fludaskoli.is) og tryggja sér borð. Safnarar allra uppsveita sameinist ? og sýnið sveitungunum dýrgripina ykkar, þó ekki væri nema þennan eina dag! Einnig ætti þetta að vera kærkomið tækifæri fyrir safnara að hitta aðra safnara og skiptast á upplýsingum og skoðunum um söfnin.