Röskun á starfsemi

Fréttir 19.12.2022
Talsverð röskun verður á starfsemi stofnana Bláskógabyggðar í dag, 19. desember, vegna veðurs, færðar og veikinda. Skólahaldi hefur þegar verið aflýst, nema í leikskóladeild Bláskógaskóla Laugarvatni. Mötuneyti í Aratungu verður lokað og ekki verður heimsending á mat. Gámasvæðin í Reykholti og á Laugarvatni verða lokuð. Íþróttamiðstöðin í Reykholti verður lokuð. Sundlaugin á Laugarvatni verður lokuð, en opið í ræktina Unnið er að snjómokstri eftir því sem aðstæður leyfa. Skrifstofa sveitarfélagsins verður lokuð, en unnt að ná í Kristófer í síma 860 4440 og í Ástu í síma 891 8991.