RITARI ÓSKAST

Fréttir 09.08.2022
Laust er til umsóknar starf ritara hjá Umhverfis- og tæknisviði Uppsveita bs. Um framtíðarstarf er að ræða í 100% starfshlutfalli. Starfs- og ábyrgðarsvið: ? Móttaka gagna og skjalaumsjón ? Ráðgjöf og upplýsingagjöf við umsækjendur í síma og tölvupósti ? Samskipti og bréfaskrif við opinberar stofnanir ? Reikningagerð ? Önnur tilfallandi störf í samráði við yfirmann Menntunar- og hæfniskröfur: ? Menntun sem nýtist í starfi ? Rík þjónustulund ? Lipurð og færni í mannlegum samskiptum ? Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig skipulega í ræðu og riti ? Góð tölvukunnátta í öllum helstu forritum s.s. Outlook, Word og Excel ? Þekking á skipulagsmálum sveitarfélaga er kostur ? Þekking á ONESystem umsjónarkerfinu er kostur Nánari upplýsingar um starfið gefur Jóhannes Hr. Símonarson, framkvæmdastjóri í síma 480-5550 eða á netfanginu johannes@utu.is Umsókn ásamt kynningarbréfi og starfsferilsskrá skal jafnframt senda á þetta sama netfang. Umsóknarfrestur er til og með mánudeginum 22. ágúst n.k. Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita (UTU) er sameiginleg skrifstofa skipulags- og byggingarfulltrúa fimm sveitarfélaga í Árnessýslu og Ásahrepps í Rangárvallasýslu. Hjá embættinu starfa tíu manns. Skrifstofa embættisins er að Dalbraut 12 á Laugarvatni. Mörg sumarhús eru á starfssvæði embættisins og einkennir það starfsemi UTU bs. umfram önnur skipulags- og byggingarfulltrúaembætti á landinu. Heimasíða embættisins er www.utu.is