Réttaball í Aratungu
Fréttir
11.09.2007
Tungnaréttir - Réttaball í Aratungu.
Laugardaginn 15. september halda Tungnamenn uppá það, að aftur er réttað fé í Tungnaréttum, í fyrsta sinn í 2 ár, eftir riðuniðurskurðinn. Réttirnar hefjast kl 9 um morguninn og um kvöldið verður réttaball í Aratungu í umsjá Skálholtskórsins, eins og verið hefur síðustu ár. Hljómsveitin ?Leynibandið?, með félögum úr Skálholtskórnum og fleirum, mun halda uppi stanslausu dansstuði fram á nótt.