Öruggara Suðurland - samstarfsvettvangur

Fréttir 18.04.2024
Í dag var haldinn fyrsti fundur verkefnisins Öruggara Suðurland og undirrituð viljayfirlýsing samstarfsaðilanna, sem eru lögreglustjórinn á Suðurlandi, sveitarfélögin á Suðurlandi, sýslumaðurinn á Suðurlandi, Heilbrigðisstofnun Suðurlands og framhaldsskólarnir á Suðurlandi.
Markmið samstarfsins er að tryggja og þróa grundvöll fyrir afbrotaforvarnir milli lögregluyfirvalda og samstarfsaðila, efla samvinnu við úrlausn mála og treysta samvinnu m.a. samkvæmt lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna nr. 86/2021 og vinna tölfræði miðað við sameiginlegar skilgreiningar samstarfsaðila sem er byggt á við markmiðasetningu við afbrotaforvarnir.
Á myndinni eru þeir aðilar sem undirrituðu viljayfirlýsingina.