Nýir starfsmenn hjá Skóla- og Velferðarþjónustu Árnesþings
Fréttir
28.01.2014
Þann 2. janúar 2014 tók til starfa Skóla og velferðarþjónusta Árnesþings. Sveitarfélögin, Bláskóagabyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur, Hveragerði, Skeiða- og Gnúpverjahreppur og Sveitarfélagið Ölfus hafa undanfarin tvö ár verið í samtarfi um rekstur velferðarþjónustu og hafa nú aukið það samstarf með því að reka sameiginlega sérfræðiþjónustu fyrir skóla.
Hinni nýju skóla- og velferðarþjónustu er ætlað að vinna á grundvelli heildarsýnar í málefnum einstaklinga og fjölskyldna og að stuðla að sjálfbærni skóla og stofnana aðildarsveitarfélaga þar sem áhersla er lögð á mikilvægi snemmtækrar íhlutunar, fræðslu, forvarnir og þverfaglegt samstarf.
Ráðnir hafa verið þrír starfsmenn sem sinna málefnum skólaþjónustunnar. Þeir eru:
Hrafnhildur Karlsdóttir, kennsluráðgjafi og teymisstjóri. Hún er með aðsetur í stjórnsýsluhúsinu á Borg. Símanúmer er 486-4400 og netfang hrafnhildur@arnesthing.is
Hugrún Vignisdóttir, sálfræðingur, með aðsetur á bæjarskrifstofunni í Hveragerði. Símanúmer er 483-4000 og netfang hugrun@arnesthing.is
Ólína Þorleifsdóttir, kennsluráðgjafi, með aðstetur í ráðhúsi sveitarfélagsins Ölfus. Símanúmer er 480-3800 og netfang olina@arnesthing.is