Ný sumarstörf fyrir námsmenn

Fréttir 13.05.2020
Bláskógabyggð hefur fengið úthlutað sumarstörfum fyrir námsmenn í tengslum við átaksverkefni Velferðarráðuneytisins og Vinnumálastofnunar. Stuðningur Vinnumálastofnunar miðast við ráðningu í tvo mánuði. Störfin eru opin öllum þeim sem eru á milli anna eða skólastiga og eru 18 ára á árinu og eldri, óháð kyni. Bláskógabyggð auglýsir því eftir starfsmönnum í eftirfarandi störf:   Skrifstofustarf ? 1 starfsmaður, 100% starf Starfið felur í sér vinnu á skrifstofu sveitarfélagsins við skjalavörslu, skráningu eldri gagna og frágang til Héraðsskjalasafns. Hæfniskröfur: Góð almenn tölvukunnátta. Sjálfstæði og frumkvæði. Reynsla af skrifstofustörfum er kostur.   Störf að umhverfismálum ? 2 starfsmenn, bæði störfin 100% störf Störfin fela í sér vinnu að umhverfismálum, svo sem fegrun og snyrtingu umhverfis, þar á meðal opinna svæða, stofnanalóða og létt viðhald mannvirkja. Unnið er víðsvegar um sveitarfélagið. Hæfniskröfur: Sjálfstæði og frumkvæði. Vandvirkni og samviskusemi.   Umsóknir skal senda á netfangið blaskogabyggd@blaskogabyggd.is. Umsóknarfrestur er til 24. maí 2020. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og FOSS.