Nemakort í strætó

Fréttir 07.08.2019
Nemendur með lögheimili á Suðurlandi sem stunda nám á höfuðborgarsvæðinu geta keypt sér Nemakort hjá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga. Kortið gildir eina önn innan svæðis á Suðurlandi og á höfuðborgarsvæðinu. Nemakortið kostar 90.000 kr. sem leggja þarf inn á reikning Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga. Reikningsnúmer: 586-26-100122 á kennitölu: 480775-0159. Svona gerir þú: Fyrst leggur þú inn á reikning Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga. Því næst sendir þú kvittunina og staðfestingu á skólavist á netfangið sass@sass.is ásamt nafni korthafa, kennitölu, heimilisfangi og ljósmynd. Innan 7 til 10 virkra daga færðu Nemakortið sent í ábyrgðarpósti á lögheimili þitt.