Námskeið í fuglaleiðsögn

Fréttir 07.04.2011
Námskeið í fuglafræði og fuglaleiðsögn fyrir leiðsögumenn, ferðaþjónustuaðila og aðra áhugasama verður haldið á Suðurlandi í vor. Dagana 15. apríl kl 14:00-19:00 og 17. apríl kl 13:00-18:00 verða fyrirlestrar og 30. apríl og 14. maí verður útikennsla. Áhersla verður á fuglaskoðun á Suðurlandi. Námskeiðið tekur alls 24 klst. Fyrirlestrar verða í Glaðheimum við Tryggvagötu 36 á Selfossi. Námskeiðið verður vottað með viðurkenningarskjali. Kostnaður við námskeiðið er niðurgreiddur af klasanum ,,Fuglar á Suðurlandi?, sem styrktur er af Vaxtarsamningi Suðurlands. Námskeiðsgjald er Kr. 15000. Námsgögn: Þátttakendur komi með greiningarbók (t.d. Fuglavísi) og sjónauka í vettvangsferðir. Glærur úr fyrirlestrum og listi yfir ítarefni verða afhentar á staðnum. Áhugasamir skrái sig á námskeiðið með tölvupósti á netfangið hrafnkell@hfsu.is í síðasta lagið 8. apríl nk. Námsefni: Einkenni fugla og lífshættir: Innri og ytri bygging, aðlaganir að flugi, fjaðrafellir, skynjun, fæðunám, æxlun og ungauppeldi. Stofnvistfræði: r og K stofnar, stofnstjórnun, mikilvægi búsvæða. Atferli: Mótun atferlis, gerðir atferlis og greining, farflug. Vistfræði algengra íslenskra  fugla: Andfuglar, sjófuglar, vaðfuglar og aðrir. Vistkerfi og náttúruvernd: Ríkjandi íslensk vistkerfi og virkni þeirra. Sérstaða Íslands: Líflandafræði Íslands og einkenni fánunnar,  sjór og búsvæði á landi. Fuglaskoðun á Suðurlandi: Einkenni Suðurlands og helstu fuglaskoðunarstaðir. Fuglaskoðun og fuglaskoðarar: Fuglagreiningar, hvar og hvenær er gott að skoða fugla, útbúnaður, umgengni við fugla og öryggi ferðamanna, gerðir fuglaskoðunar og mismunandi markhópar. Kennarar: Erpur Snær Hansen, Jóhann Óli Hilmarsson, Ragnhildur Sigurðardóttir og Tómas Grétar Gunnarsson. Erpur Snær Hansen  er deildarstjóri vistfræðirannsókna hjá Náttúrustofu Suðurlands. Hann lauk doktorsprófi í vist-, þróunar- og flokkunarfræði frá University of Missouri, St.-Louis, BNA 2003. Hann hefur stundað rannsóknir í yfir 20 ár með áherslu á atferli, vistfræði, lífeðlisfræði og stofnstjórnun sjófugla. Jóhann Óli Hilmarsson  hefur stundað fuglaljósmyndun, fuglarannsóknir og leiðsögn í fuglaskoðunarferðum og fuglaljósmyndaferðum um árabil.  Hann er höfundur Fuglavísis og fleiri bóka og er formaður Fuglaverndar. Ragnhildur Sigurðardóttir er verkefnisstjóri hjá Háskólafélagi Suðurlands. Hún lauk doktorsprófi í vistfræði frá Yale University í Bandaríkjunum 2000. Ragnhildur hefur stundað rannsóknir á vistkerfum og búsvæðum fugla og er verkefnisstjóri klasa sem vinnur að uppbyggingu fuglaferðamennsku á Suðurlandi.  Ragnhildur starfaði áður sem leiðsögumaður og var virk í félagsstörfum fyrir  Félag  leiðsögumanna.Tómas Grétar Gunnarsson er forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Suðurlandi. Hann lauk doktorsprófi í fuglavistfræði frá University of East Anglia í Bretlandi 2005. Hann hefur stundað fjölbreyttar rannsóknir á íslenskum fuglastofnum og búsvæðum þeirra með áherslu á vaðfugla og stofnstjórnun farfugla. Hann hefur umsjón með kennslu í fuglafræði við Háskóla Íslands.