Námskeið á vegum Matís laugardaginn 26. mars
Fréttir
23.03.2011
Matís hyggst halda námskeið í súrsun, sultun og niðursuðu á grænmeti og ávöxtum, laugardaginn 26. mars næstkomandi frá kl 10-17.
Námskeiðið er ætlað öllum áhugasömum um súrsun, sultun og niðursuðu matvæla. Námskeiðið fer fram í Matarsmiðjunni á Flúðum, að Iðjuslóð 1.
Farið verður yfir öll aðalatriði varðandi vinnslu og meðhöndlun vörunnar, allt þar til hún er komin á borð neytenda.
Leiðbeinendur: Irek Adam Klonowski og Vilberg Tryggvason hjá Matís
Verð 15.000 krónur, skráning og frekari upplýsingar fást í síma 858-5133 og gegnum netfangið: vilberg@matis.is
Starfsmenntasjóðir endurgreiða kostnað vegna námskeiðahalds til einstaklinga og fyrirtækja allt að 75%. Sjá nánari upplýsingar um starfsmenntasjóði og úthlutunarreglur á www.starfsafl.is , www.landsmennt.is ogwww.starfsmennt.is