Náms- og rannsóknarstyrkur

Fréttir 24.10.2018
Vísinda- og rannsóknarsjóður Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um náms- og rannsóknarstyrk fyrir árið 2018. Úthlutað verður kr. 1.500.000 í styrki þetta árið. Styrkurinn er ætlaður námsfólki sem vinnur að rannsóknarverkefni til lokaprófs á háskólastigi. Verkefnið skal tengjast Suðurlandi og þjóna ótvíræðum atvinnu- og/eða fræðilegum tilgangi fyrir Suðurland eða hluta Suðurlands. Umsóknarfrestur er til 10. nóvember næstkomandi og skulu umsóknir vera sendar á netföngin eyjolfur@fraedslunet.is eða sigurdur@hfsu.is. Nánari upplýsingar um sjóðinn má finna á www.fraedslunet.is og www.hfsu.is.