Náms- og rannsóknarstyrkur
Fréttir
01.11.2017
Vísinda- og rannsóknarsjóður Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um náms- og rannsóknarstyrk fyrir árið 2017. Styrkurinn nemur 1.250.000 kr.
Styrkurinn er ætlaður námsfólki sem vinnur að rannsóknarverkefni til lokaprófs á háskólastigi. Verkefnið skal tengjast Suðurlandi og þjóna ótvíræðum atvinnu- og/eða fræðilegum tilgangi fyrir Suðurland eða hluta Suðurlands.
Umsóknarfrestur er til 10. nóvember 2017. Nánari upplýsingar á www.fraedslunet.is og www.hfsu.is.