Myndir frá opinberri heimsókn forseta Íslands Guðna Th. Jóhannessonar og Elizu Reid forsetafrú.

Fréttir 13.06.2017
Bláskógabyggð fagnaði 15 ára afmæli föstudaginn 9. Júní sl. Að því tilefni kom forseti  Íslands og forsetafrú í opinbera heimsókn til okkar.  Sveitarstjórn tók á móti forsetahjónunum  við Þingvelli árdegis og fylgdi þeim á áhugaverða staði í sveitarfélaginu.  Fyrst var móttaka hjá þjóðgarðsverði á Þingvöllum, síðan farið á Laugarvatn, þar sem m.a. var snæddur hádegisverður.  Á Hjálmsstöðum í Laugardal var forsetahjónunum sýnt nýbyggt fjós, og síðan farið í heilsugæsluna í Laugarási.  Þar var fyrir heilbrigðisráðherra, og skrifað var undir samning um heilsueflandi sveitarfélag.  Þaðan var haldið í Friðheima til Knúts og Helenu og aðstaðan þar skoðuð.  Að síðustu var móttaka í Aratungu með  íbúum sveitarfélagsins.  Þetta var einstaklega ánægjulegur dagur og allt fór eins og best var á kosið. Bláskógabyggð skartaði sínu fegursta, allir í sólskinsskapi, í sínu fínasta pússi og sól skein í heiði.