Morgen Dahl Kammerkór verður með tónleika í Skálholtsdómkirkju föstdaginn 16. september kl 20:30

Fréttir 14.09.2011
Mogens Dahl Kammerkór heldur glæsilega kórtónleika í Skálholtsdómkirkju föstudagskvöldið kemur kl. 20:30. Mogens Dahl Kammerkór heldur kórtónleika föstudagskvöldið kemur 16.september í Skálholtsdómkirkju. Tónleikarnir eru liður í tónleikaferð kórsins um norðurlöndin. Á efnisskránni eru eingöngu norræn kórtónlist og meðal annars verk eftir Hauk Tómasson. Mogens Dahl Kammerkór er danskur kór stofnaður árið 2005 af stjórnanda sínum Mogens Dahl og er skipaður úrvals söngvurum sem allir eru menntaðir atvinnusöngvarar. Kórinn hefur getið sér mjög gott orð og fengið afar góða dóma fyrir fjölda hljóðrita og tónleika. Tónleikarnir í Skálholtsdómkirkju hefjast kl. 20:30. Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.