Menntamálaráðherra kynnir nýja menntastefnu á Selfossi 13 október frá kl 20-22 í Fjölbrautarskóla Suðurlands

Fréttir 13.10.2008
Menntamálaráðherra mun á næstu vikum fara um landið og kynna nýja menntastefnu og ný lög um þrjú skólastig og menntun kennara. Fundaherferðin hófst með velheppnuðu Menntaþingi í Háskólabíói 12. september sem yfir 800 manns sóttu, hlýddu á kynningar á nýrri stefnu og tóku þátt í líflegum umræðum í málstofum. Næsti fundur verður haldinn á Selfossi í Fjölbrautaskóla Suðurlands þann 13. október frá kl. 20-22. Á fundinum mun Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, kynna nýja menntastefnu og Arnór Guðmundsson, skrifstofustjóri í  menntamálaráðuneyti, kynnir nýja menntalöggjöf nánar. Að erindum loknum verða pallborðsumræður með málshefjendum ásamt Guðna Olgeirssyni og Sölva Sveinssyni, sérfræðingum í menntamálaráðuneyti. Fundurinn er öllum opinn og vill menntamálaráðuneytið hvetja skólafólk, foreldra, nemendur og annað áhugafólk um skólamál til að mæta og ræða nýja menntalöggjöf sem býður upp á mörg og spennandi tækifæri fyrir íslenskt skólakerfi. Í nýjum lögum um leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda eru margar veigamiklar breytingar sem endurspegla þá stefnu að nemandinn sé í brennidepli í skólastarfinu, faglegt starf kennara verði eflt og áhrif og ábyrgð á námi færð til þeirra sem málið varðar mest.  Dæmi um breytingar eru eftirfarandi: ? Áhrif foreldra á starf í leikskólum aukin með stofnun foreldraráða. ? Skólastjórar í leik- og grunnskólum bera nú aukna ábyrgð á samhæfingu sérfræðiþjónustu og gert er ráð fyrir að þjónustan fari í auknum mæli fram innan veggja í skólans. ? Samræmd próf í 10. bekk grunnskóla verða felld niður í núverandi mynd en í staðinn tekin upp könnunarpróf í íslensku, ensku og stærðfræði að hausti í 10. bekk. ? Veitt er heimild til samreksturs, leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla ? Framhaldsskólar fá aukið sjálfstæði til að móta námsframboð og gera tillögur um nýjar námsbrautir. Ekki er lengur miðað við fjórar bóknámsbrautir og starfsnám og bóknám verður jafngilt til stúdentsprófs. ? Menntun kennara verður stórefld og gerð er krafa um að leik-, grunn- og framhaldsskólakennarar hafi lokið meistaragráðu. Nánari upplýsingar um nýja menntastefnu og dagskrá haustsins eru á www.nymenntastefna.is.