Menningarverðlaun Bláskógabyggðar

Fréttir 04.12.2014
Menningarverðlaun Bláskógabyggðar voru afhent í fyrsta skipti á jólamarkaði Kvenfélags Laugdæla 29. nóv. sl. Menningarmálanefnd Bláskógabyggðar hafði veg og vanda af afhendingu verðlaunanna. Verðlaunin komu að þessu sinni í hlut Ungmennafélags Biskupstungna fyrir að standa að útgáfu Litla ? Bergþórs í 35 ár og útgáfu á sögu félagsins ?Ungmennafélag Biskupstungna ? 100 ára saga?. Það voru þau Smári Þorsteinsson, formaður Umf. Bisk., og Svava Theodórsdóttir, fulltrúi ritnefndar Litla-Bergþórs, sem tóku við verðlaununum úr hendi Sigríðar Jónsdóttur fulltrúa menningarmálanefndar. 18897_Menningarverðlaun 2014