Menningaráð Suðurlands auglýsir eftir umsóknum í stofn- og rekstrarstyrki til menningamála og verkefnastyrki

Fréttir 02.01.2013
Menningarráð Suðurlands auglýsir stofn- og rekstrarstyrki til menningarmála (styrkir sem Alþingi veitti áður) Tilgangur styrkjanna er að stuðla að því að efla starfsemi á sviði lista, safna og menningararfs. Styrkveitingarnar miðast við árið 2013. Umsóknarfrestur rennur út 17.febrúar 2013 Umsóknareyðublað og úthlutunarreglur er að finna á heimasíðu Menningarráðs Suðurlands www.sunnanmenning.is Nánari upplýsingar veitir menningarfulltrúi Suðurlands Dorothee Lubecki í síma 896-7511 eða á menning@sudurland.is Menningarráð Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um verkefnastyrki Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Suðurlandi geta sótt um styrki en skilyrði er að umsækjendur sýni fram á mótframlag. Heimilt er að sækja um styrk til verkefna sem umsækjandi er þegar byrjaður að vinna í. Menningarráð Suðurlands hefur ákveðið að árið 2013 hafi þau verkefni forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða: 1. Samstarf milli tveggja eða fleiri aðila, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað. 2. Verkefni sem efla nýsköpun tengd menningu. 3. Verkefni sem stuðla beint að fjölgun atvinnutækifæra. 4. Verkefni sem styðja við menningartengda ferðaþjónustu. 5. Verkefni sem draga fram staðbundin eða svæðisbundin menningareinkenni eða menningararf. Menningarráðið mun hvorki veita rekstrar-, stofnkostnaðar- né endurbótastyrki. Ekki verður heldur styrkt skráning á menningarminjum, starfsemi íþróttafélaga, bæjarhátíðir, almennar samkomur, safnaðarstarf og hefðbundið menningarstarf innan skóla. Umsóknarfrestur er til og með 17. febrúar 2013. Ætlunin er að tilkynna um úthlutun fyrir páska 2013. Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Suðurlands á þar til gerðum eyðublöðum sem hægt er að nálgast á heimasíðu Menningarráðs www.sunnanmenning.is. Allar nánari upplýsingar veitir Dorothee Lubecki, menningarfulltrúi Suðurlands, í síma 480-8207, 896-7511 eða með tölvupósti menning@sudurland.is. Menningarfulltrúi verður til viðtals í öllum sveitarfélögum. Umsóknir skal senda, í tölvupósti á menning@sudurland.is