Matarkistan Hrunamannahreppi. Uppskeruhátíð laugardaginn 6. september 2014
Fréttir
02.09.2014
Félagsheimilið á Flúðum. Matarkistan markaður 12:00-17:00
Matvæli frá fjölmörgum aðilum úr sveitinni; úrval af grænmeti, kræsingar í krukkum,
?Kjöt frá Koti?, mjöl, hunang, lambakjöt, einnig handverk og fleira skemmtilegt.
Bjarkarhlíð Flúðum opið hús 13:00-17:00
Anna Magnúsdóttir handverkskona býður gesti velkomna heim í vinnustofu sína.
Garðyrkjustöðvarnar Varmilækur og Laugarland opið 13:00-17:00
"Ragnheiður á Garðyrkjustöðinni Varmalæk, kynnir sína framleiðslu og íslenskar tómatsósur í bílskúrnum á Varmalæk. Garðyrkjustöðin Laugarland verður þar líka með sína grænmetisframleiðslu. Flott framleiðsla og allir velkomnir að smakka.
"Leikur að List" Laugarlandi Flúðum opið 13:00 - 17:00
Handverk eftir Möggu. Myndir, steinar og vísnakort eftir Dóru Mjöll.
Dúkkusýning með yfir 700 dúkkum og þeim er enn að fjölga.
Velkomin, heitt á könnunni og svalandi rabbabarasafi (gatan fyrir ofan sundlaug)
Bragginn ? leir og kaffi opið 12:00 ? 18:00
Kaffihús og leirvinnustofa í skemmtilegu jarðhýsi í Birtingaholti. Matseðillinn byggir á því hráefni sem er að finna í heimasveit og verður til sölu heimabakað brauðmeti úr mjöli frá Fjólu í Birtingaholti, kökur sem koma á óvart, ásamt dásamlegu kaffi.
Hinn sívinsæli Bragga bröns er frá 12:00 ? 15:00.
Leirvinnustofan verður opin og hægt er að fylgjast með listakonunni að störfum.
Göngujóga. Hressandi göngu jóga hjá Láru jógakennara. Farið verður af stað frá Bragganum í Birtingaholti klukkan 11:30. Kostnaður við þátttöku í jóga er 700 kr.
(10 mín akstur frá Flúðum).
Hótel Flúðir
Tekið á móti gestum í nýja, glæsilega garðinum 14:00-16:00 og boðið upp á að smakka grænmetissúpu frítt. Barinn opinn. Gengið er inn um aðaldyrnar á hótelinu í garðinn.
Í tilefni Uppskeruhátíðarinnar verðum við með sérstakan 3 rétta kvöldverðarseðil,
Heitreykt bleikja, nautalund ?bearnaise? og ís með Silfurtúns-jarðaberjum.
Kr. 6900.- per mann.
Efra-Sel
Bændamarkaðurinn opinn 11.00 ? 18.00.
Kaffi-Sel opið 8.00 ? 20.30.
Golfvöllurinn: ?Opna íslenska grænmetismótið?
laugardaginn 6. september. Sérstakur barnaflokkur 9 og 18 holur.
Aðalstyrktaraðili mótsins er Sölufélag garðyrkjumanna
Skráning og nánari upplýsingar á www.golf.is
Samansafnið Sólheimum Hrunamannahreppi
opið 13:00 - 17:00, 5.-7. september.Minjasafn, gamlir bílar, kýr og kálfar.
Aðgangseyrir fullorðnir 1000 kr, börn 13-18 ára 500 kr.
www.samansafnid.com (6.5 km frá Flúðum)
Kaffi Grund Flúðum
Í tilefni af Uppskeruhátíð
13:00 ? 17:00 Vaffla og kakó/kaffi á kr. 850,-
18:00 ? 21:00 Mexikönsk kjúklingasúpa á kr. 1.400,-
Carlsberg í gleri á kr. 500,-
Útlaginn á Flúðum. Opið og allir velkomnir.
Kurlproject opið frá 13:00-18:00. Íslensk hönnun.
Klæðskeraverkstæði Ernu Óðinsdóttur v/ Hvammsveg
Markavöllur
Fótboltagolf 18 holur, opið frá 10:00-17:00
Frábært fyrir unga jafnt sem aldna. Verið velkomin.
Völlurinn er 4 km sunnan við Flúðir (við veg nr 30, rétt við Miðfell)
Sundlaugin Flúðum opin 12:00-18:00
Gamla laugin Hvammi opin 13:00-22:00Náttúrulaug v/Hvammsveg www.secretlagoon.is
Verslunin Samkaup- Strax
Opið 10:00-18:00. Ýmis tilboð í gangi.
Minilik Eþíopískt veitingahús á Flúðum
Opið 11:00-20:00 og til kl. 18:00 eru tilboð á eftirtöldum réttum:
1. Misto - lambakjöt og nautakjöt borið fram á Eþíópískan hátt.
2. Grænmetis og baunaréttur.
Einnig tilboð á ceremonial kaffi, sem brennt og malað á staðnum.
Verið velkomin.
?Uppsveitahringurinn? íþróttaviðburður haldinn sama dag www.sveitir.is