Marsviðburður Upplits í samstarfi við Hvöt í Félagsheimilinu Borg 16. mars 2012

Fréttir 13.03.2012
Maður og kona ? hljóðupptökur og ljósmyndir Marsviðburður Upplits ber yfirskriftina ?Maður og kona 1967? og verður haldinn í samstarfi við Ungmennafélagið Hvöt í Félagsheimilinu á Borg í Grímsnesi föstudagskvöldið 16. mars kl. 20.00. Leiknar verða hljóðupptökur Böðvars Stefánssonar skólastjóra af völdum köflum úr leikritinu Manni og konu eftir Jón Thoroddsen, sem Ungmennafélagið Hvöt setti á svið árið 1967. Ljósmyndir Böðvars frá uppsetningunni verða til sýnis undir hljóðupptökunum, en það var Sigríður Eiríksdóttir frá Ásgarði sem fór í gegnum upptökurnar og valdi kaflana. Margir komu að sýningunni á sínum tíma og má þar m.a. nefna þau Reyni í Eyvík, Gunnlaug í Félagsheimillinu, Tryggva á Björk, Helgu í Miðengi, Siggu og Ása í Ásgarði, Pálínu í Kaldárhöfða og Kela á Stærri-Bæ, en öll settu þau svip á leiklistarlíf í Grímsnesi á þessum árum. Hörður Óli Guðmundsson í Haga hefur umsjón með dagskránni fyrir hönd Hvatar, sem hlaut styrk til verkefnisins frá Menningarráði Suðurlands. Kaffiveitingar verða í boði ungmennafélagsins. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir!