Málþing um ferðaþjónustu í Uppsveitum Árnessýslu fimmtudaginn 17. nóvember kl. 13:00-16:00

Fréttir 08.11.2016

?Allt er breytingum háð? Fjölsóttasta ferðamannasvæði landsins - þróun á tímum örra breytinga. Málþing um ferðaþjónustu í Uppsveitum Árnessýslu, verður haldið í Golfskálanum á Efra-Seli, Hrunamannahreppi (Flúðum) fimmtudaginn 17. nóvember kl. 13:00-16:00. Frummælendur verða  Einar Á.E. Sæmundsen fræðslufulltrúi Þjóðgarðsins á Þingvöllum og Ásborg Arnþórsdóttir ferðamálafulltrúi Uppsveita Árnessýslu. Einnig verða sagðar reynslusögur fyrirtækja á svæðinu og almennar umræður. Ekkert stendur í stað, vöxtur í ferðaþjónustu hefur breytt starfsumhverfi fyrirtækja og býður upp á fjölbreytt ný viðfangsefni og áskoranir Allir velkomnir