Malbikunarframkvæmdir á Suðurlandsvegi

Fréttir 31.05.2022
Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir:   Miðvikudags- og fimmtudagskvöld 1. ? 2. júní er stefnt á að malbika báðar akreinar á Suðurlandvegi við Kögunarhól undir Ingólfsfjalli. Suðurlandsvegi verður lokað á milli Hveragerðis og Biskuptungnabrautar frá kl. 19:00 til 6:00 að morgni 1. ? 2. júní og aftur 2. ? 3. júní. Hjáleiðir verða merktar um Eyrarbakkaveg og Þorlákshafnarveg. Sjá nánar um lokun og merkingar í viðhengdu lokunarplani.   Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum. í neyðartilfellum má hafa samband við umsjónarmann merkinga 660-1921 eða verkstjóra 660-1916.