Malbikunarframkvæmdir 25 til 27 ágúst 2021

Fréttir 25.08.2021
Hringtorgi á mótum Skeiða,-og Hrunamannavegar (30-06) og Langholtsvegar (341-01) á Flúðum, verður lokað frá og með miðvikudegi 25.ágúst til og með föstudags 27 ágúst vegna malbikunarframkvæmda. Vegfarendum er bent á hjáleiðir um Biskupstungabraut (35) og Skálholtsveg (31).  Vegna framkvæmda á nærliggjandi vegum í kringum Flúðir er fólk hvatt til að sýna biðlund og virða tilmæli um lækkun hámarkshraða.  Gera má ráð fyrir allmiklum töfum og lengri ferðatíma vegna framkvæmdanna.