Malbikun

Fréttir 23.07.2019
Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir: Þriðjudag 23.júlí er stefnt að því að malbika Laugarvatnsveg frá hringtorgi við Gjábakkaveg og uppfyrir gatnamót við Laugabraut . Annari akreininni verður lokað í einu og umferð stýrt framhjá framkvæmdasvæðinu. Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp skv. viðhengdu lokunarplani 8.0.01. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 08:00 til kl. 20:00. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum. Ábyrgðarmaður veghaldara er Hallvarður 699-6450, ábyrgðarmaður verktaka er Stefán 660-1922.