Listrými - Myndlist fyrir alla

Fréttir 10.10.2017
Myndlistarnámskeið Listrýmis í Listasafni Árnesinga hófust haustið 2015 og hafa verið í stöðugri þróun til að koma til móts við óskir og þarfir samfélagsins á Suðurlandi. Markmiðið er að bjóða upp á námskeið í hinum ýmsu greinum myndlistar, í heimabyggð og fyrir alla.   Á dagskrá Listrýmis veturinn 2017-18 eru fjölbreytt námskeið í teikningu, málun, mótun, tækniaðferðum og hugmyndaþróun. Flest námskeiðin í vetur eru í formi helgarnámskeiða þar sem fólk hefur tækifæri til að kynnast og kafa í viðfangsefnið yfir heila helgi. Kennt er í Listasafni Árnesinga í Hveragerði þar sem aðstaðan til sköpunar er góð, auk þess sem bækurnar og sýningarnar á safninu gefa möguleika á nánari tengslum við listaverk og sögu.   Öll heimili í Árnessýslu og Rangárvallasýslum ættu nú að vera búin að fá nýja bækling Listrýmis í hús en honum er dreift nú í vikunni.   Námskeiðin sem boðið er upp á í vetur eru: Myndin í huganum - Teiknun og málun, Litir og flæði - Vatnslitamálun 1, Málverk og sköpun - Blönduð tækni, Masterclass - Olíumálun, tækni og aðferðir, Anatómía og módel - Teiknun og málun, Kafað í djúpið - Vatnslitamálun 2, Mótun ? Lágmyndagerð og Litir og form - Olíumálun. Einnig er vilji fyrir því að auka við námskeiðsúrvalið, líka fyrir börn og eru allar hugmyndir vel þegnar í því sambandi.   Leiðbeinendur Listrýmis eru allir búsettir á Suðurlandi en það eru þau Dagný Guðmundsdóttir, Guðrún Tryggvadóttir, Jakob Veigar Sigurðsson og Mýrmann. Verkefnisstjóri Listrýmis er Guðrún Tryggvadóttir myndlistarmaður, sem hefur langa reynslu af námskeiðahaldi á sviði myndlistar. Verkefnið er styrkt af Uppbyggingasjóði Suðurlands.