Leiksýningar á leikverkinu "Unglingurinn"

Fréttir 03.03.2014
Ágætu Sunnlendingar Við komum með Unglinginn til ykkar! Unglingurinn er frábært nýtt leikverk  sem er samið og leikið af unglingum. Sýningin hefur slegið í gegn og Menningarþátturinn Djöflaeyjan kaus hana m.a sem eina af áhugaverðustu sýningum ársins og sagðist ekki hafa skemmt sér svona vel í langan tíma. UNGLINGURINN er drepfyndið leikrit en á sama tíma mjög einlægt og tekur á öllum helstu málum sem brenna á unglingum í dag. Þó að verkið sé um unglinga er það ekki síður skemmtilegt fyrir foreldra og systkini. Þetta er tilvalin samverustund þar sem hláturtaugarnar eru kitlaðar og foreldrar fá smá fræðslu í unglingamálum! Og ekki spillir verðið því að Gaflaraleikhúsið og Menntalestin bjóða miðann á  aðeins 1.750 kr ef að keypt er viku fyrir sýningu eða fyrr. (almennt miðaverð er 2.500 kr).  Miðasala fer fram á midi.is. Sýningar á Suðurlandi: Laugardagur  15. feb.  kl. 17.00  Laugaland í Holtum Laugardagur  22. feb.  kl. 17.00  Leikskálar í Vík Mánudagur  24. feb.  kl. 20.00   Leikfélag Vestmannaeyja Sunnudagur  2. mars.  kl. 17.00  Sindrabær á Höfn Sunnudagur  16. mars.  kl. 17.00  Hólmaröst á Stokkseyri Laugardagur  22. mars  kl. 17.00  Aratunga