Leikskólakennari óskast
Fréttir
03.10.2016
Bláskógaskóli á Laugarvatni auglýsir eftir leikskólakennurum frá og með 1. nóvember 2016.
Bláskógaskóli á Laugarvatni er samrekinn leik og grunnskóli sem leggur meðal annars mikla áherslu á samfellu á milli skólastiganna, fjölbreytta kennsluhætti og einstaklingsmiðað nám. Grenndarkennsla er stór hluti af starfinu og verið er að vinna að þróunarverkefni þar sem lögð er áhersla á útinám með fjölbreytta kennsluhætti að leiðarljósi þvert á skólastig.
Meginmarkmið stefnunnar á leikskóladeild eru að hvetja barnið til að þess að nota öll sín skilningarvit, ?málin sín hundrað? og starfa markvisst að því að virkja frumlega og skapandi hugsun. Í starfinu eru notaðar opnar spurningar eins og hvað, hvernig og hvers vegna? Lögð er áhersla á takmarkalaust traust og virðingu fyrir barninu og getu þess til að afla sér reynslu og þekkingar á eigin forsendum. Sjálfsmynd barnsins mótast af þeim viðbrögðum og þeirri framkomu sem barnið mætir í umhverfinu. Áhersla er lögð á að skoða einstaklinginn og hans eiginleika. Barninu er gefinn kostur á að tjá tilfinningar sínar og hugsanir og tengja við tilfinningar annarra. Með alhliða þjálfun skynjunar og tilfinninga eykst sjálfsvitund og trú á eigin getu. Frjálsi leikurinn er helsta kennsluaðferð leikskólans en einnig er lögð áhersla á grunnþætti menntunar samkvæmt Aðalnámskrá leikskóla 2011.
Hæfniskröfur:
- Leikskólakennaramenntun
- Færni í mannlegum samskiptum
- Jákvæðni og áhugi fyrir margbreytilegu starfi
- Lausnamiðun í starfi er mikilvægur eiginleiki
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð