Leikskólakennarar og Þroskaþjálfar
Fréttir
02.05.2016
Leikskólinn Álfaborg auglýsir eftir leikskólakennara og eða Þroskaþjálfa til að starfa í tveggja deilda leikskóla sem rúmar allt að 36 börn samtímis, frá 12. mánaða til 6. ára. Leikskólinn er staðsettur í Reykholti Biskupstungum og starfar í anda Reggio Emilia stefnunnar. Í leikskólanum starfar samstillt, glaðlynt og metnaðarfullt starfsfólk og mikil áhersla er lögð á góðan staðblæ og vellíðan barna. Verið er að innleiða læsistefnu í leikskólann í samvinnu við leik og grunnskóla Árnesþings og mikill metnaður er lagður í þá vinnu. Auk þess er mikil og góð samvinna á milli leik- og grunnskólans í Reykholti. Ef þú ert glaðlynd/ur með mikinn metnað, sveigjanleg/ur og með einstaklega góða hæfileika í mannlegum samskiptum, þá hvetjum við þig til að sækja um.
Umsóknir sendast í Leikskólann Álfaborg, Reykholti 801 Selfoss (dreifbýli) eða
Á netfangið reginarosa@blaskogabyggd.is
Umsóknarfrestur er til og með 20. Maí 2016
Við hvetjum jafnt karla sem konur til að sækja um
Upplýsingar veitir Regína Rósa Harðardóttir leikskólastjóri í síma 480-3045