Laust starf hjá Bláskógaveitu
Fréttir
25.06.2012
ATVINNA
Starfsmaður hjá Bláskógaveitu
Laust er til umsóknar starf hjá Bláskógaveitu, Bláskógabyggð. Um er að ræða fullt starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Bláskógaveita er staðsett í sveitarfélaginu Bláskógabyggð, sem jafnframt er eigandi veitunnar. Bláskógabyggð er staðsett í uppsveitum Árnessýslu og nær yfir Biskupstungur, Laugardal og Þingvallasveit. Starfslýsing:- Vinna við almennan rekstur Bláskógaveitu undir verkstjórn veitustjóra og veitustjórn
- Vinna við viðhaldsverkefni og nýframkvæmdir veitumannvirkja
- Aðstoð við gerð verk- og kostnaðaráætlana vegna viðhaldsverkefna og nýframkvæmda
- Aðstoð við gerð útboðsgagna vegna viðhaldsverkefna og nýframkvæmda
- Gerð rekstrar- og fjárhagsáætlana í samstarfi við veitustjóra og veitustjórn
- Sjá um uppsetningu og viðhald á viðhaldsbókhaldi veitunnar
- Dagleg samskipti við viðskiptavini og starfsmenn sveitarfélags
- Sjá um aflestur á mælum hitaveitu í samráði við veitustjóra
- Önnur verkefni sem starfsmanni er falið af veitustjórn eða veitustjóra.
- Iðnaðarmenntun og/eða tæknimenntun er æskileg
- Reynsla og/ eða innsýn í stjórnsýslu sveitarfélaga er æskileg
- Reynsla í stjórnun og mannaforráðum er æskileg
- Reynsla við tölvuvinnslu, s.s. við almennan notendahugbúnað, bókhaldskerfi og veitukerfi, er æskileg
- Nákvæmni og skilvirkni í starfi
- Samskiptahæfni
- Starfsreynsla við verklegar framkvæmdir
- Reynsla við gerð verk-, kostnaðar- og fjárhagsáætlana
- Reynsla í mannlegum samskiptum þar sem áhersla er lögð á góða þjónustu