Laus störf við Bláskógaskóla Laugarvatni.

Fréttir 14.07.2020
Bláskógaskóli Laugarvatni er samrekinn leik-og grunnskóli með 74 nemendur. Við leitum eftir: ? Stuðningsfulltrúa á yngsta stig grunnskóladeildar ? Kennara á leikskóladeild Bláskógaskóla Laugarvatni í fullt starf. Leikskóladeildin horfir til hugmyndafræði Reggio Emilia í starfi sínu. Það er lögð rík áhersla á lýðræði, samvinnu, útinám og samstarf milli skólastiga. Þeir kostir sem við leitum eftir hjá kennara að hafa einlægan áhuga á börnum, námi þeirra og þroska og hafi áhuga á teymisvinnu með samstarfsmönnum. Við leitum að einstaklingi sem: ? hefur kennsluréttindi ? hefur brennandi áhuga á útinámi og útiveru ? er jákvæður og spenntur fyrir samstarfi ? að langar að þróa sig í stafi ? tekur jákvætt undir hugmyndir barna ? á auðvelt með að aðlagast breytingum. Við leggum áherslu á að starfsmenn vaxi í starfi og að áhugi þeirra og gleði fái að njóta sín sem skilar sér í góðum samskiptum. Hlökkum til að taka á móti áhugaverðum umsóknum. Horft er til meðmæla og reynslu. Sendið umsóknir og fyrirspurnir endilega á netfang: elfa@blaskogaskoli.is til að fá frekari upplýsingar. Umsóknarfrestur er til 28. júlí 2020.