Laus störf hjá Bláskógabyggð
Fréttir
18.04.2008
Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar hjá sveitarfélaginu Bláskógabyggð:
Skólastjóri leikskólans Álfaborgar
Reykholti, Bláskógabyggð
Sveitarfélagið Bláskógabyggð auglýsir starf leikskólastjóra Álfaborgar, Reykholti, laust til umsóknar.
Álfaborg er leikskóli með um 34 nemendur og 10 starfsmenn sem starfa á 2 deildum. Í Álfaborg er metnaðarfullt skólastarf, gott starfsumhverfi og góð samvinna starfsfólks, barna, foreldra og annarra samstarfsaðila skólans. Áhersluþættir leikskólans eru nám í gegnum leik og unnið er eftir ítölsku stefnunni Reggio Emilia.
Aðalverkefni leikskólaskólastjóra er að bera ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri og veita skólanum faglega forystu á sviði kennslu og framþróunar skólastarfsins.
Óskað er eftir umsækjanda með leikskólakennaramenntun. Ennfremur að viðkomandi hafi stjórnunarreynslu og stjórnunarhæfileika. Mikilvægt er að umsækjandi hafi góða samskiptahæfileika og áhuga á skólaþróun.
Umsóknarfrestur er til 2. maí n.k. Umsóknir berist til Valtýs Valtýssonar, sveitarstjóra Bláskógabyggðar, Aratungu, 801 Selfoss, netfang valtyr@blaskogabyggd.is, sem veitir nánari upplýsingar í síma 486-8808.
Laus störf hjá Leikskólanum Álfaborg ? Reykholti
Deildarstjóri:
Laust er starf deildarstjóra í Leikskólanum Álfaborg. Æskilegt er að umsækjendur hafi leikskólakennararéttindi. Um er að ræða 100% starf.
Leikskólakennarar:
Laus eru til umsóknar tvær stöður leikskólakennara, annars vegar 100% staða og hins vegar 80% staða. Til greina kemur að ráða ófaglærða starfsmenn ef ekki berast umsóknir frá fagmenntuðum umsækjendum.
Álfaborg er leikskóli með um 34 nemendur og 10 starfsmenn sem starfa á 2 deildum. Í Álfaborg er metnaðarfullt skólastarf, gott starfsumhverfi og góð samvinna starfsfólks, barna, foreldra og annarra samstarfsaðila skólans. Áhersluþættir leikskólans eru nám í gegnum leik og unnið er eftir ítölsku stefnunni Reggio Emilia.
Nánari upplýsingar um starf og verksvið veitir:
Svanhildur Eiríksdóttir, leikskólastjóri, sími: 863-9595