Kynning á því sem í boði er um ljósleiðara

Fréttir 24.06.2020
Kvöldstund með fjarskiptafélögum   Mánudaginn 29. júní n.k. verður kynningarfundur frá kl. 17:00 ? 20:00 í Aratungu. Þar gefst íbúum kostur á að hitta sölufulltrúa fjarskiptafélaga sem selja internet, sjónvarps og símaþjónustu. Það er í boði að fá verðtilboð og panta sér fjarskiptaþjónustu á staðnum. Auk þess verða fulltrúar Bláskógaljóss á staðnum til að svara spurningum um verkefnið.   Lagning á ljósleiðara í Bláskógabyggð gengur samkvæmt áætlun. Senn líður að því að fyrstu notendur geti tengst kerfinu. Áfangar 1, 2, 5 og 8 eru mjög langt komnir og við vonumst til þess að íbúar í umræddum áföngum geti tengst kerfinu upp úr mánaðarmótum júní / Júlí.   Kynningafundurinn er kjörinn vettvangur til þess að bera saman þær vörur, verð og þjónustu sem fjarskiptafélögin bjóða ykkur. Á heimasíðu Bláskógaljóss, blaskogaljos.net undir "Spurt og svarað" er sérstakur kafli sem heitir "Um þjónustuveitur". Íbúar eru hvattir til kynna sér þær upplýsingar fyrir fundinn.   Kynningafundurinn er með þeim hætti að fjarskiptafélögin setja upp kynningabása og taka á móti íbúum og öðrum áhugasömum. Þetta er því "maður á mann" samkoma þar sem hægt er að kíkja við hvenær sem er á tímabilinu 17:00 til 20:00.   Hlökkum til að sjá sem flesta.   Kveðja, Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri