Kveðjuhóf til heiðurs læknunum Gylfa og Pétri 12. janúar 2017 í Aratungu
Fréttir
28.12.2016
Læknarnir okkar í uppsveitunum Árnessýslu til meira en 30 ára, þeir Gylfi Haraldsson og Pétur Skarphéðinsson eru að láta af störfum um þessar mundir. Þeir hafa verið einstaklega farsælir í sínum störfum og hlúð að heilsufari íbúanna með miklum sóma. Það má því ekki minna vera en þeir verði heiðraðir með kveðjuhófi.
Hófið verður haldið fimmtudaginn 12. janúar 2017 í Aratungu með fjölbreyttri dagskrá og kaffiveitingum og hefst það kl 19:00
Veislustjóri verður Halldór Páll Halldórsson rektor Menntaskólans á Laugarvatni
Við vonumst til að íbúar í læknishéraðinu sjái sér fært að mæta.
Undirbúningsnefndin