Kjörstaðir í Bláskógabyggð vegna forsetakosninga 1. júní 2024

Fréttir 21.05.2024

Forsetakosningar fara fram þann 1. júní 2024

Kjörstaðir í Bláskógabyggð vegna forsetakosninga 1. júní 2024 eru tveir:

 

  1. Aratunga, Reykholti, fyrir íbúa í Biskupstungum.
  2. Bláskógaskóli Laugarvatni, Lindarbraut 6, fyrir íbúa í Laugardal og Þingvallasveit.

 

Kjörfundur hefst í báðum kjördeildum kl. 10:00 og lýkur

kl. 22:00.

 

Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki og framvísa þeim ef óskað er. Einstaklingar búsettir erlendis, sem hafa kosningarétt í Bláskógabyggð, eru á kjörskrá í kjördeild I, Aratungu, Reykholti.

 

Kjörskrá liggur frammi á skrifstofu Bláskógabyggðar í Aratungu frá og með 11. maí 2024 fram til kl 12:30 31. maí 2024

 

Yfirkjörstjórn Bláskógabyggðar