Jólatónleikar
Söngfélagið kynnir með stolti áttundu jólatónleikana sína!
Þemað í ár kemur frá Suður-Ameríku og verða flutt tvö verk eftir argentínska tónskáldið
Ariel Ramirez, annars vegar hin þekkta Kreólamessa ?Misa Criolla? og hinsvegar
helgisagan um fæðingu Krists ?Navidad Nuestra?. Þá verða flutt nokkur vel valin suðuramerísk
jólalög. Samkvæmt hefð Söngfjelagsins verður einnig frumflutt nýtt íslenskt
jólalag. Það er samið í suður-amerískum anda af Hjörleifi Hjartarsyni kórfélaga sem
einnig er annar meðlima tvíeykisins Hundur í óskilum.
Suður-ameríska hljómsveitin INTI Fusion, ásamt hinni stórfenglegu brasilísku söngkonu,
Bruna Santana, koma fram á tónleikunum, en hljómsveitin var einnig gestur
Söngfjelagsins fyrr á þessu ári.
Haldnir verða tvennir tónleikar. Þeir fyrri verða í Skálholtskirkju laugardaginn 8. desember
kl. 16:00 og þeir síðari í Langholtskirkju sunnudagskvöldið 9. desember kl. 20:00.
Miðaverð: 4500 kr.
https://tix.is/is/event/7127/lamadyrajol-/
Um INTI Fusion
Hljómsveitin INTI Fusion var stofnuð í Noregi árið 1988 og hlaut fyrstu verðlaun á Latin
American Festival of Folk Music í Stokkhólmi strax árið eftir. Hljómsveitina skipa Salvador
Machaca (charango og panflautur) og Edgar Albitres (söngur og flautur) sem koma frá
Perú, Hector Meriles (gítar) frá Bólivíu, Carlos Jeldes (bassi) frá Chile, Héctor Novas
(trommur) frá Argentínu og Vidar Ytre-Arne (fiðla) frá Noregi. Hljómsveitarmeðlimir sækja
innblástur til Andesfjalla en einnig í evrópskan og afrískan menningararf.
Eftir að hafa unnið saman í yfir 25 ár hefur hljómsveitin
þróað einstakan hljóm sem er mjög ólíkur öðrum hefðbundnum hljómsveitum sem spila
tónlist frá Andesfjöllunum.
Sjá nánar á: http://www.intifusion.com/